6.5.2007 | 13:42
Færsla..
Jú, það er rétt. Mínir menn voru teknir í nefið af sprækum Ítölum. En hef samt ekki áhyggjur af þessu frábæra sóknarliði. Held reyndar að Ferguson sé á undan áætlun með þetta lið. Tökum Meistaradeildina að ári. Þarf bara aðeins að auka við breiddina.
Um síðustu helgi voru Borgfirskir kirkjukórar samankomnir í Reykholti. Það komu samt flestir frá mér eða 33 talsins. Samtals voru þetta um 55 manns. Góð og gagnleg helgi undir handleiðslu söngmálastjóra. Ég var sáttur og vonandi er þetta samstarf komið til að vera. Góðar hugmyndir og "praktískt" efnisval. Ég hef mikið yndi af að vinna með kórum. Er með fullt af hugmyndum í kollinum sem þarf að koma í framkvæmd.
Sæluviku Skagfirðinga er nýlokið. Ekki komst ég þangað frekar en fyrri daginn. En mikið afskaplega var ég hissa að sjá skagfirsku kóranna vera með tónleika í sitt hvoru lagi og á sama tíma á laugardagskvöldið. Synd! Ópera Skagafjarðar setti upp La Traviata fyrir stuttu. Frábært framtak og var þeim sem að þessu stóðu til sóma, hef ég heyrt. En af myndböndum sem ég hef séð frá þessari uppsetningu, þá var þar fólk sem ekki hefur verið áberandi í tónlistarlífi í Skagafirði. En þetta fólk stóð sig glæsilega. Örugglega væri hægt að gera enn stærri og flottari hluti ef allir legðust á eitt. Heimismenn, Rökkurkórinn og Ópera Skagafjarðar. Vonandi á næstu Sæluviku.
Nýjar myndir eru komnar inn. Hafþór tók þátt í Landsbankahlaupinu og lenti í þriðja sæti í sínum flokki. Þrátt fyrir að hafa flogið á hausinn :) En hann fékk bæði bikar og pening og ég lofaði að setja myndina af honum á netið.


eythoringi
organisti
svavaralfred
hemba
eythora
bjarneyrun
ktomm










Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.